Wazzup
Skólarnir mínir
Áhugaverðar síður
10.10.2006 22:50:40 / iristhor

Elskurnar mínar...

Hef ákveðið að færa mig um set...

Kíkið á www.123.is/rissa

Þar mun ég vera í framtíðinni... minna blaður fleiri myndir :) Búin að setja inn myndir frá Ítalíu :)

Over...


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 13:30:53 / iristhor

Ciao tutti...

Fúff... langt síðan ég lét vita af mér.

Anyway þá er míns komin aftur heim frá þeim yndislega stað Ítalíu. Þetta var náttúrulega ólýsanlega yndislegt eins og búist var við. Ég er heldur betur búin að sýna Atla brot af því besta á Ítalíu. Sem dæmi þá tókum við þvílíkan túristapakka á Feneyjar... gondóla, sáum blásið í gler, piazza San Marco (þar sem allar dúfurnar eru), il Rialto (þar sem allir veitingstaðirnir eru), tókum leigu"bát" yfir til Murano þar sem við sáum blásið í gler og ég veit ekki hvað og hvað... sjaldan verið eins mikill túristi. En ferðin var öll æðisleg, veðrið frábært, brúðkaupið yndislegt og við hreinlega skemmtum okkur konunglega.

En það sem toppaði allt var sennilega það að Atli þekkti náttúrulega einn vin minn þarna í Rovereto... jú jú, við vorum að labba framhjá búð sem hann á í Rovereto og þar sem ég ætlaði að kynna þá komumst við að því að þeir kynntust á Íslandi fyrir 11 árum síðan. Ég vissi jú alveg að Christiano, þessi vinur okkar, hefði nokkrum sinnum komið til Íslands, en að þeir Atli þekktust vissi nú enginn. Heimurinn er alltaf að minnka og við erum öll enn að jafna okkur á þessari uppákomu :haha:

Það er náttúrulega brjálað að gera í skólanum, þar sem ég er stödd einmitt í þessum töluðu orðum og verð víst að halda áfram að rýna í skruddurnar.

Bið að heilsa ykkur að sinni....

p.s. Vala... já ég er þokkalega game í Ítalíu-gellu-hitting. Nefndu bara stund og stað:)


» 3 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 09:54:15 / iristhor

Afmæli...

Það er alltaf brjálað að gera í afmælunum hjá mér í september en í þessum mánuði eru þegar komin 5 afmæli. Ok þetta er svo sem ekkert í frásögur færandi en einhvern veginn varð ég að byrja þessa færslu talandi um afmælu til að geta sagt ykkur að í gær var ég í níræðis afmæli hjá tengdapabba..... umorðun 1: tengdapabbi minn er 90 ára gamall.... umorðun 2: hann er reyndar stjúpfaðir Atla og 16 árum eldri en mamma hans og fyrir ykkur sem vitið það ekki þá er Atli 15 árum eldri en ég.... allt saman leiðir þetta til þeirrar staðreyndar að tengdapabbi minn er 90 ára (í dag) :lol: Mér finnst þetta frekar fyndið sko.... En svona til að bæta aðeins við þetta þá varð lang-amma mín 86 ára 9. september.... jebb lang-amma mín er sum sé yngri en tengdapabbi ha ha ha ha ha mér finnst þetta sjúklega sniðugt allt saman ..... en þegar uppi er staðið þá eru þetta bara tölur :) Ciao

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 16:43:07 / iristhor

Myndir...

Sko það er sem sagt linkur á síðunni sem heitir myndaalbúm og þar er að finna örfáar myndir sem ég þurfti að setja inn vegna skólaverkefnis... ætla rétt að biðja ykkur að vera ekki mikið að skoða þessu síðu þar sem hún var gerð í miklum flýti :^). Hún er sem sagt verkefni sem ég gerði í upplýsingatækni í Kennó. En ég á eftir að uppfæra síðuna og breyta henni í myndasíðu... það verður sennilega ekki gert í nánustu framtíð þannig að ekki halda niðri í ykkur andanum... það er craaaaazy að gera hjá okkur verðandi kennurum ;)

Ciao


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.09.2006 11:04:12 / iristhor

Guðdóttir mín heitir...

... Matthildur Emelía ...

Til hamingju aftur elsku Signý mín og Hrannar... æðislega fallegt nafn.

Guð verndi þig elsku besta Matthildur Emelía.


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 15:03:58 / iristhor

Dekur, dekur...

Haldiði að við séum ekki bara búin að lengja ferðina okkar um einn dag :D

Jebb við erum búin að bóka herbergi á hótel Keflavík www.hotelkeflavik.is þar sem við munum sofa nóttina áður en við förum út... næææææs, morgunverðarhlaðborð, geymsla á bílnum og skutl á völlinn.... allt innifalið.... að maður skuli ekki hafa gert þetta áður sérstaklega þar sem flugin eru alltaf á svo ókristilegum tíma.

Ciao for now.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.09.2006 12:28:35 / iristhor

Myndir...

Elsku þið sem hafði þolinmæði í að bíða eftir færslu og kíkið á mig öðru hvoru... vildi bara láta ykkur vita að ég er að vinna í myndasíðunni og fyrir mánaðarlok verða komnar inn fuuuuuuullt fullt af myndum.

Ciao,

Íris. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 14:12:02 / iristhor

Tek allt til baka...

Já ég bara verð að taka allt til baka sem ég sagði um Kennó og að allt virtist fara rólega af stað..... ég segi nú bara "búlshit".... hver andsk... maður fær bara ekkert að vinna ;) Það er reyndar eitt gott við þetta og það er að ég get skila af mér þremur stórum verkefnum áður en ég fer út... þá þarf ég ekki að vera í einhverju stressi þegar ég kem heim og get notið þess ennþá meira að vera á Ítalíunni minni :)

Anyway þá er ég í vinnunni núna og má eiginlega ekki vera að því að blogga.... Lítur svolítið illa út núna þegar viðskiptavin vantar afgreiðslu og ég bara að kjafta.... hí hí... minnir doltið á kellingarnar í Ástríki og þrautunum 12, þið sem hafið séð hana munið að ein af þrautunum var að sækja leyfisbréf nr. 386 eða eitthvað álíka, en Signý mín ég er ansi hrædd um að við séum einar í heiminum sem áttum hana sem uppáhaldsmynd í laaaangan tíma ;)

Ciao.


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 09:15:15 / iristhor

La scuola...

Jebb skólinn er byrjaður enn á ný og hvað þýðir það.... jú það er komið haust... loksins loksins er komið haust og styttist óðum í Ítalíuferðina langþráðu.... sorry.... veit ég tala endalaust um þessa ferð en ég hreinlega bara lifi fyrir hana þessa dagana :)

En þó skólinn sé byrjaður þá er ég nú ekki hætt að vinna... ætla að vinna sem mest þangað til við förum í..... æi þið vitið..... ferðina þarna ;) Þettta fer voða rólega af stað hjá okkur í Kennó sýnist mér þannig að ég ætti að geta unnið á meðan ég er ekki í skólanum... engin skil fyrr en í lok sept..... veit ekki ennþá með HÍ reyndar... fer fljótlega að tékka á statusinum þar...

Þangað til næst,

Ciao.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 12:38:00 / iristhor

Smá updeit...

Held ég verði að tileinka þessa færslu þeim Signýju og Fríðu þar sem þær eru svo duglegar að kíkja á þessi ómerkilegu skrif mín... stelpur mínar ég held að það sé enginn annar en þið sem lesið þetta ;)

En Akureyri... humm... hvað skal segja.... það er alltaf æðislegt að koma þangað en mér leið ekki vel í miðbænum að kvöldi til... æðislegt að vera á tjaldstæðinu í Kjarnaskógi en miðbærinn var fekar sóðalegur... ekki beint barnvænt umhverfi!

Svo vorum við að halda fyrsta partýið okkar um helgina ;) Buðum samstarfsfólki mínum og mökum heim á laugardagskvöldið... fengum okkur aðeins neðan í því og svo fóru nokkrir heim bara en við fórum örfá á local pubinn sem... tjah, var ekki mjög tilkomumikill, helmingur gestanna var "sofandi" og hinn helmingurinn (hinir 2 ;)) voru ekkert rosalega aðlaðandi heldur... ætli það segi ekki allt að við Atli stoppuðum í c.a. 10 mínútur og höfðum ekki einu sinni list á bjórnum okkar !!

Bið að heilsa að sinni,

Ciao.


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 15:27:29 / iristhor

Versló...

Já viti menn, verslunarmannahelgin er að ganga í garð, sumarið senn á enda (finally ;) ) og fólk farið að þyrpast til Vestamanneyjanna minn sem verða að vera án okkar Atla þetta sumarið. Já leið okkar liggur norður á Akureyri þessa helgina þar sem við ætlum að skjóta upp tjaldi á Hömrunum við Kjarnaskóg. Við tökum Söru skonsu með okkur og ætlum bara að hafa það rosa huggulegt, kíkja í Ásbyrgi og svoleiðis :)

En þetta var bara svona létt fréttainnskot, annars bara fínt að frétta, fékk aðeins að sleikja sólina síðustu 2 daga og flestir í gúddí fíling held ég.

Góða helgi.

-ÍÞ-


» 3 hafa sagt sína skoðun

28.07.2006 08:42:50 / iristhor

Gleðilegt sumar...

Ég held að ég hafi aldrei sagt gleðilegt sumar jafn oft á einu sumri... ástæðan er ekki óheyrilegur fjöldi sólardaga heldur akkurat öfugt... þessa sjö daga sem sólin hefur skinið á höfuðborgana hefur lundin lést um helming... ég er frekar mikið fúl út í þetta sumar og þetta er í fyrsta skiðti sem ég get ekki beðið eftir því að það klárist... aðalástæðan er náttúrulega ítalíuferðin okkar í september... 61 dagur þangað til ;) jú jú maður telur niður, en ekki hvað ;)

Annars er voða lítið að frétta... ótrúlegt hvað dagarnir hverfa þegar maður er að vinna til 18:00, en ég ætla ekkert að kvarta samt... þetta er fínasta vinna, frábært fólk og hvað er ég ekki búin að læra um hellur og hellulagningu ;) Gaman að því.

Stóra spurningin þessa dagana er "hvað skal gera eftir kennó", halda áfram í HÍ, ég var jú að skrá mig í tvo íslenskuáfanga þar sem ég ætla að taka með í vetur, stefndi á masternn í íslensku en er farin að hugleiða það að taka bara bachelorinn í íslenskunni og læra fara svo í eitthvað allt annað, t.d. viðskiptafræði eða eitthvað álíka!!!! One doesn´t know, er pínu lost en hef svo sem engar áhyggjur, finn eitthvað út úr þessu þegar þar að kemur!!!

Orð dagsins: "Þetta reddast" ;)

Ciao


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 10:42:48 / iristhor

Nörd!!!

Við Atli erum svo mikil nörd... sérstaklega Atli reyndar... vill meina að þetta hafi verið á hans ábyrgð 8|... eftirtektarsamir hafa tekið eftir að síðustu helgi fórum við norður á Akureyri. Stefnan var tekin á esso-mót eða pollamót eins og það kallast. Málið er að við tökum helgarfeil :^) Mótið var ekki síðustu helgi eins og það hefur verið frá upphafi heldur var búið að færa það áfram um eina helgi... það er sem sagt næstu helgu. En við komumst ekki að þessu fyrr en allt dótið var komið út í bíl á fimmtudaginn og búið að redda fríi í vinnunni á föstudeginum. Við létum það þí ekki stoppa okkur í að fara norður og enduðum á landsmóti hestamanna á Vindheimamelum. Það var æðislega gaman og úr þessu varð hin besta útilega sem endaði reyndar á því að ég sneri á mér ökklann og þarf að styðjast við hækjur... en það er allt önnur saga ;)

Ciao


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 12:49:21 / iristhor

Akureyri

Gott fólk.... þetta er hreint ótrúlegt... "FYRSTAHELGINÍJÚLI" er að ganga í garð en samt hefur sumarið lítið látið á sér bera.

Við ætlum að pakka niður útilegubúnaðinum okkar í kvöld og skella okkur á norður á Akureyri eftir vinnu á morgun. Þar á veðrið víst að vera best þessa helgi þannig að við þangað :) Aðalástæðan fyrir Akureyravalinu er reyndar sú að hið árlega pollamót fer fram þessa helgi... ég er ekki að tala um litlu strákana heldur old boys þar sem eitthvað allt annað en vatn er geymt í brúsunum ;)

Þið sem hafið áhuga á að koma í góða veðrið þá eru 2 laus pláss í bílnum :)

Ciao

-ÍÞ-


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2006 08:49:21 / iristhor

Skap manns og "sköp" manna!!!

Ég þykist ætla að taka master í íslensku þrátt fyrir að telja orðið skap og hafa notað það í fleirtölu um daginn þegar ég var að talaði um það að skap manna léttist þegar sólin skín. En í staðinn fyrir það sagði ég að "sköp" manna breyttust!!! Ég veit nú ekki til þess að "sköp" breytist mikið eftir veðri og vindum mín virðast allavega halda sér hvort sem það er sól eða rigning.

Ég vildi bara koma þessu á framfæri og leiðrétta misskilning ;)

Signý og Hrannar... þessi færsla er tileinkuð ykkur :haha:

Over.  


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4